Drög að dagskrá
Þegar dagskráin er í mótun er ýmsum spurningum varpað fram sem svara þarf. Nokkrar lykilhugmyndir hafa litið dagsins ljós og boðsgestir eru vinsamlegast beðnir um að leggja annað hvort fleiri tillögur til eða benda hátíðarnefnd á hvað má betur fara í þeim hugmyndum sem hér verða opinberaðar.
Ferð á Bolafjall - þar er að finna stórkostlegt útsýni yfir Atlantshafið og í góðu skyggni sést til stranda Grænlands.
Lautarferð á einn af eftirfarandi stöðum
- Skálavík, fögur strönd í einungis 15 mín fjarlægð frá bústað. Mikil náttúruperla.
- Surtarbrandsnáma í Syðridal, gömul náma sem er í um hálftíma göngufjarlægð frá bústaðnum. Skemmtileg gönguferð og mikil kyrrð.
- Ganga uppað uppistöðulóni Reiðhjallavirkjunar, gríðarlega fallegt stöðuvatn uppi í hálsinum milli Syðridals og Hnífdals. Hægt er að keyra langleiðina upp á betri bílum.
Sundmót hátíðarinnar, mótið hefur legið í dvala síðastliðin ár en með tilkomu nýrrar rennibrautar eru uppi háfleygar hugmyndir að fyrirmyndarskemmtun í lauginni. Síðast bar drengjaliðið öruggan sigur úr býtum, spurningin er hvort að stúlkur nái fram hefndum í ár?
Körfuboltamót verður hugsanlega haldið fyrir sundferð. Síðast skoraði Regína Grýtuna á hólm og illa fór fyrir henni svo ekki sé meira sagt. Núna er stelpan í rífandi formi og Grýtan í Ólympíuformi, hvernig fara leikar í ár?
Brennan við tóftina, fastur liður í hátíðarhöldum. Gítarinn verður viðraður og sykurpúðar étnir af góðkunnri áfergju. Minnum alla á að þetta er algjör hápunktur sumarsins og þarna skapast minnigar sem að gleymast seint eða jafnvel aldrei. Sigríður Helga mun halda ltila tölu um ábyrgð þegar veigar eru við hönd áður en bálið er tendrað.
Golfmót Bolungarvíkur verður í ár haldið á hinum forkunnarfagra velli í Syðridal. Gunnar STEF Skúlason mun svara öllum spurningum varðandi mótið í síma: 8668815
kv Hátíðarnefnd




