10 dagar!
Hátíðarnefnd hefur borist fregn af því að Gunnar Harðarson muni koma hjólandi á hátíðina í ár. Gunnar hefur nýverið tekið miklu ástfóstri við reiðhjól sitt og skilur það aldrei við sig hvort sem að leið hans liggur út fyrir landsteinana eður ei. Í ljósi þessa mun Gunnar leggja af stað kl. 06:00 í fyrramálið. Gunnar hefur að eigin sögn gert munnlegt samkomuleg við hinu ýmsu bændur sem munu koma til að með að verða á vegi hans og mun hann því njóta ókeypis tjaldgistipláss á meðan á ferð hans stendur. Til að tryggja hámarksafköst og endingu hjólsins fær hann einnig að hýsa hjólið í hlöðum bændanna næturlangt svo ekki falli á hjólið dögg né annað sem ske kynni að falla af himnum ofan.
Hátíðarnefnd hefur strax brugðist við þessum mikla áhuga Gunnars á hjólreiðum með því senda af stað viðbragsteymi til þess að setja upp hjólreiðastand sem nú er í smíðum í vélsmiðju Bolungarvíkur hjá Nonna frænda. Hjólið hans Gunnars verður því í góðu ,,hjólastandi" ef svo kynni að hann dræpist áfengisdauða í Saununni.
Hátíðarnefnd óskar Gunnari góðrar ferðar og hlakkar til að sjá að hann að 10 dögum liðnum.

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Home