miðvikudagur, júlí 25, 2007

9 dagar!

Hátíðarnefnd vill byrja þessa færslu á að óska Gunnari innilega til hamingju með að hafa lokið sínum fyrsta áfanga á leiðinni til Skriðu. Honum lauk þó ekki einsog upphaflega var lagt upp með heldur endaði ferðin snögglega á KFC í Mosfellsbæ. Þar sprakk víst á "vel-í-pumpuðu"dekki Gunnars og þar sem varadekk hans varð eftir í Danmörku, neyddist hann til þess að reisa tjald sitt fyrr en áætlun gerði ráð fyrir, í garði við mannlaust hús.
Að eigin sögn þá segir Gunnar að þetta sé hið mesta klúður, en hann muni ekki láta deigan síga. "Tja, þetta var náttúrulega algjört klúður, ég var þarna nýkominn uppá hæðina hjá KFC og virkilega tilbúinn að láta mig loksins "renna" aðeins niður brekkuna þarna en einhver af þessum sveitadurgunum í þessu "B-klassa" sveitarfélagi hafði hent úldinni kótilettu á götuna og stökkur hryggjarliðurinn í steikinni stakkst bara alla leið inn að gjörðinni."
Margir myndu segja að þarna væri um gríðarmikla óheppni að ræða, en hátíðarnefnd hefur á borði sínu óstaðfestar munnlegar heimildir fyrir því að yfirmenn mosfellska vinnuskólans hafi staðið á bakvið ódæðið.

Í öðrum óspurðum fréttum hefur Atli Már, betur þekktur sem Rex-B, þvertekið fyrir það að hann hafi íhugað afboð á hátíðina. Atli Már fullyrti í samtali við hátíðarnefnd að hann hefði gefist upp á ástinni og að hann hyggðist leggja dansskóna á hilluna. Eins og margir lesendur Halló Skriða.is vefsins eflaust vita þá eru þessi tíðindi reiðarslag fyrir íslenskar táningstelpur sem hafa lengi beðið eftir því að Atli "snéri sér" að þeim.

Image and video hosting by TinyPic
Ófáar mæður á höfuðborgarsvæðinu þurftu að hugga táningsdætur sínar vegna frétta af Rex-B

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Home