miðvikudagur, júlí 25, 2007

Allt fyrir ástina.


Rétt í þessu barst hátíðarnefnd ábyrgðarpóstur frá dyggum lesanda síðunnar. Sendingin reyndist innihalda hljómplötu áritaða af nýlega ,,heimsþekktum" tónlistarmanni. Sá ku heita Páll Óskar og er Hjálmtýsson. Svo virðist sem Páll hafi rekið augun í þann hluta síðustu færslu sem segir Atla Má vera búinn að gefast upp á ástinni. ,,Ástarútbreiðarinn" Páll var ekki lengi að bregðast við þessum tíðindum og útbjó hið snarasta nýtt eintak af sínum nýjasta ,,hittara" Allt fyrir ástina og sendi hátíðarnefnd með hraðpósti með það fyrir augum að opna augu Atla fyrir ástinni á ný. Fyrir vikið hefur hátíðarnefnd ákveðið að hér eftir verði Páll kallaður Pósturinn Páll. Auk þess á nú hátíðarnefnd í skriflegum samningarviðræðum við Póstinn Pál um að Allt fyrir ástina verði lag hátíðarinnar árið 2007 og í fullum trúnaði er ekki öllum lokum fyrir það skotið að Pósturinn Páll sýni sig og sjái aðra á hátíðinni í ár. Spurning hvort að hægt sé að plata hann í smá diskó við varðeldinn?

Það er því ljóst að ástin verður allsráðandi á hátíðinni í ár og spurning hvort að einhverjir neistar kveikni yfir varðeldnum. Í það minnsta læðist að manni sá grunur að Atli leiði um þessar mundir hugann að því hvort að það sé séns á sleik. Hann myndi allavega ekki hata það.

2 comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ekki hata ég sleikinn ;)

26. júlí 2007 kl. 00:20  
Blogger Halló Skriða.is said...

díses Hildur...

kv.
Ronkoooooooooooooooooooooo

26. júlí 2007 kl. 10:59  

Skrifa ummæli

<< Home