fimmtudagur, júlí 26, 2007

Ball í Hnífsdal?



Eftir að Gunnar Skúlason opinberaði komu sína á hátíðina er óhætt að segja að símalínurnar í byrginu hafi verið rauðglóandi. Gunnar sem er betur þekktur undir sviðsnafni sínu DJ-STEF sem ekki allir vita að stendur fyrir Stærra Typpi En Flestir, hefur verið einn af ástsælustu skífuskönkurum Íslands undanfarin ár og sögn forstöðumanns félagsheimilisins í Hnífsdal þá gæti þetta orðið einn allra stærsti viðburður hússins á árinu ásamt stórtónleikum Karlakórs Dýrafjarðar og froðudiskótekinu sem Grunnskóli Ísafjarðar hélt um páskana. Að sögn STEF þá er það umtalað í bransanum að Félagsheimilið í Hnífsdal sé algjör "diskógryfja" og þó að þar sé slagsmálatíðnin afar há þá gerir það böllina bara "grimmari".

"Þetta er náttúrulega algjör pittur sko, helvítis fjörið á það til að fara algjörlega með menn. Mc-Steinbítur félagi minn sagði mér sögu af strák sem var með honum í bekk sko, og drengurinn datt bara í svo grimman gír að hann rankaði hreinlega við sér útí miðri Æðey. Það er náttúrulega ekkert á helvítis eyjunni sko en hann hafði víst farið í kappsund við Steinbítinn og var bara í svo rosalegum gír eftir ballið að hann hætti ekkert fyrr en hann datt á land í Æðey, það eru helvítis 4 sjómílur. Menn voru að tala um að hann hefði synt á sirka 4 hnúta hraða þarna!! Annars átti hann víst bara að hafa flotið á einhverri þorsktorfu síðustu míluna. Það syndir náttúrulega enginn maður þessa vegalengd nema hann þarna Guðlaugur þarna úr Eyjum. Já já, það er óhætt að segja að þetta sé heitasti staðurinn þarna fyrir vestan sko, þetta og kannski Vagninn á Flateyri. Þó að það sé kannski meiri svona "sveitapöbb" hehe" sagði STEF aðspurður um álit sitt á félagsheimilinu.

5 comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Djofulssins thrusu stemmer er fyrir -essari fýsu.
-Etta er altalad sem heitasta hátid ársins hér í madrid.

ronkoooooooo

28. júlí 2007 kl. 19:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Charlie tryllist thegar eg segi theim fra Skridu, Nam er gjorsamlega ad missa sig yfir hatidinni.

-JB

29. júlí 2007 kl. 09:14  
Anonymous Nafnlaus said...

Oh það er spáð rigningu allan tímann.

31. júlí 2007 kl. 13:26  
Anonymous Nafnlaus said...

Þurfum við ekki að fara að reyna að fá botn í hverjir fara hvenær og með hverjum. Nei, ég bara spyr?

31. júlí 2007 kl. 15:08  
Blogger Unknown said...

ég er hætt að sofa á nóttinni ég er orðin svo spennt...
þetta verður trylllt!!!
-krillz

1. ágúst 2007 kl. 16:38  

Skrifa ummæli

<< Home