þriðjudagur, júlí 24, 2007

Ekki er allt gull sem glóir!

Rétt í þessu bárust þær fregnir úr herbúðum Heklu Daðadóttur að hún sæi sér ekki fært að mæta á hátíðina að þessu sinni sökum þess að innan skamms hefjast upptökur á piparsveinku Mosfellsbæjar. Renna þessar fregnir stoðum undir þann orðróm að Atli Már muni einnig boða forföll á hátíðina í ár enda að eigin sögn á ,,þörfinni".

Í ljósi þessara fregna leitar Rúnar víst í ofboði að staðgengli Heklu og hefur að eigin sögn gert drög að munnlegu samkomulagi við Oleg Titov. Einnig hefur Valdís Þorkelsdóttir boðið fram systur sína Salóme ef allt bregst, því líkt og hátíðargestir vita bregðast krosstré sem önnur tré.

Image and video hosting by TinyPic
Víti til varnaðar: Hátíðarnefnd vonar að ekki fari svona fyrir Gunnari!

1 comments:

Blogger Horseman in Turkish. said...

Þið eruð skíthælar og ég tek ekki þátt í þessari vitleysu.
Það er alvitað mál að Þorsteinn Kári er meira á "þörfinni" en ég..við erum að minnsta kosti temmilega samstíga í þessu.
No homo.

25. júlí 2007 kl. 17:05  

Skrifa ummæli

<< Home