McDonald's. Ich liebe es!
Jæja krakkarnir mínir,
ég er með konstant sáðlát af spennu og eftirvæntingu um það sem koma skal um helgina, svona eins og Jimbo í American Pie, þegar Nadia var að gera sig líklega.
Ég fer kl. 1900 á föstudag. með pabba og mömmu.
er ekki eitthvað semi ferðaplan að detta í hús.
Hvaða snillar fara, þá vil ég fá staðfest nöfn.
Hvernig er með gistingu þarna, ég er með shotgun á rúmið við hliðina á rúminu hans steina. Sem er neðri koja í nýja húsinu í herberginu með tveimur kojum.
Ég og Gunnar Harðarson erum búnir að boða komu okkur í ræktina á Bolungarvík þar sem við tökum opna æfingu. http://www.bb.is/ er búið að staðfesta það að fréttaritari og ljósmyndari mæta á svæðið og fylgjadt með work ethics margfaldra Íslandsmeistara.
Öðrum hátíðargestum er að sjálfsögðu boðið að koma með og rífa í lóðin með okkur G-luv eins og það sé enginn morgundagur.
ég vill vinsamlegast fá nöfn allra og ferðaáætlun þeirra í kommentadálkinn
peace out, B-town,
Ronkoooo K-man

5 comments:
Sigrún Edda leggur af stað í dag á slaginu 18:00 í partýbílnum ásamt Hafsteini (bílstjóra), Önnu Margréti og Hildi Káradóttur !!!
ég og hildur förum á föstudag klukkan 16:30 á jeppanum.
Ég, Gummalingur og Embla förum á fös klukkan 14 á þeim flöskugræna.
Samkvæmt hefð má aðeins spila íslenska tónlist á leiðinni, og munum við væntanlega fá okkur pullu í Baulunni og börra í Bjarkarlundi. Að vanda mun Gummi keyra fremur greiðlega en örugglega vestur og ég mun sjá um að vera með bílhræðslu í kröppum fjarðarbeygjum með tilheyrandi ópum og væli. Hins vegar verðum við gríðarlega hress er við komum að Skriðu annað kvöld.
Hvurnig var það annars. Átti ekki að setja upp glæsilega myndasíðu til heiðurs Halló Skriðu hátíðinni, eða voru það bara orðin tóm?
OK, það eru bara 3 vikur í Halló Skriðu.is '08
Er fólk ekki orðið jafn spennt og ég...þarf ekki að fara að starta einhverju nýju á þessari síðu??
KV. Krilli murder
Skrifa ummæli
<< Home