Drög að dagskrá
Þegar dagskráin er í mótun er ýmsum spurningum varpað fram sem svara þarf. Nokkrar lykilhugmyndir hafa litið dagsins ljós og boðsgestir eru vinsamlegast beðnir um að leggja annað hvort fleiri tillögur til eða benda hátíðarnefnd á hvað má betur fara í þeim hugmyndum sem hér verða opinberaðar.
Ferð á Bolafjall - þar er að finna stórkostlegt útsýni yfir Atlantshafið og í góðu skyggni sést til stranda Grænlands.
Lautarferð á einn af eftirfarandi stöðum
- Skálavík, fögur strönd í einungis 15 mín fjarlægð frá bústað. Mikil náttúruperla.
- Surtarbrandsnáma í Syðridal, gömul náma sem er í um hálftíma göngufjarlægð frá bústaðnum. Skemmtileg gönguferð og mikil kyrrð.
- Ganga uppað uppistöðulóni Reiðhjallavirkjunar, gríðarlega fallegt stöðuvatn uppi í hálsinum milli Syðridals og Hnífdals. Hægt er að keyra langleiðina upp á betri bílum.
Sundmót hátíðarinnar, mótið hefur legið í dvala síðastliðin ár en með tilkomu nýrrar rennibrautar eru uppi háfleygar hugmyndir að fyrirmyndarskemmtun í lauginni. Síðast bar drengjaliðið öruggan sigur úr býtum, spurningin er hvort að stúlkur nái fram hefndum í ár?
Körfuboltamót verður hugsanlega haldið fyrir sundferð. Síðast skoraði Regína Grýtuna á hólm og illa fór fyrir henni svo ekki sé meira sagt. Núna er stelpan í rífandi formi og Grýtan í Ólympíuformi, hvernig fara leikar í ár?
Brennan við tóftina, fastur liður í hátíðarhöldum. Gítarinn verður viðraður og sykurpúðar étnir af góðkunnri áfergju. Minnum alla á að þetta er algjör hápunktur sumarsins og þarna skapast minnigar sem að gleymast seint eða jafnvel aldrei. Sigríður Helga mun halda ltila tölu um ábyrgð þegar veigar eru við hönd áður en bálið er tendrað.
Golfmót Bolungarvíkur verður í ár haldið á hinum forkunnarfagra velli í Syðridal. Gunnar STEF Skúlason mun svara öllum spurningum varðandi mótið í síma: 8668815
kv Hátíðarnefnd

8 comments:
ég samdi ljóð af spennu á að fara á skriðu
það svífur að ,
lengi hef eg hugsað til þess
þess sem eg hef beðið
surlar í himni
kraumar í steggjum
ó hvað ég er glöð
Dagskráinn er einum of góð.
haha ég elska lýsingarnar á gönguferðum
allhliða ganga , mikil kyrrð, 15 min frá bústað
Ég er byrjuð að semja keppnisgreinar sundmótsins. en ég er með kort og ljósmyndir af lauginni mér til stuðnings.
haha, besta greinin er samt dottin niður þar sem tóma set lauginn er farinn þar sem við kepptum í að liggja í ísköldum polli.
SHITT þetta verður svo gaman.
sundkeppnin var geðveik, og ískaldi pollurinn!!!
verður ekki að vera einhver rennubrautagrein í staðin fyrir pollinn??
vá hvað ég hlakka til ...þetta verður geðveikt :o)
GLADIATOR er líka í hörku sundformi... við tökum þetta stelpur!!!
- krilli
Ég tek það fram að það er einungis á færi breska heimsveldisins að keyra upp að stíflu, það er ekkert flóknara en það.
Það hefur bæst í hópinn, því foreldrar mínir, Salvör, Kata vinkona hennar og Stærsti aðdáandi DMX á Íslandi, Monaco Káradóttir munu koma og ala manninn á Skriðu um helgina.
Annars er það að frétta að ég er eins og smákrakki on 'is böfday ég er svo spenntur.
T minus 8 hours till take off...
hvað er þessi kata gömul? lögleg?
Takk kærlega fyrir mig skriðufjölskylda.
frábær helgi!
Ekki sáttur með hátíðarnefnd!
Fjandinn, ég var að lesa þessa dagskrá og hélt að þetta væri dagskráin í ár.
Skrifa ummæli
<< Home