sunnudagur, júlí 27, 2008

Halló Skriða.is 2008

Stórmeistarar og stórmeistörur. Komið er að hápunkti sumarsins 2008, Halló Skriða.is verður haldin formlega eftir um viku og þetta árið verður engu til sparað frekar en fyrri daginn. Hátíðin verður haldin með svipuðu sniði og venjulega en einsog skáldið sagði þá má alltaf gott bæta. Hátíðarnefnd tekur þessi orð að sjálfsögðu grafalvarlega og verður skipulögð dagskrá í ár með þeim margslungnari og þrumandi sem menn hafa heyrt um.

Hátíðarhöld hefjast klukkann 00:01 þann 1. ágúst þegar kveikt verður á sánunni og evkaliptuskenndar unaðsgufur munu leika um fyrstu gestina. Gestir munu síðan allir vera komnir um miðaftansbil sólarhring seinna og þá verður almenn dagskrá kunngjörð með pompi og prakt.

Staðfest hefur verið að veðrið verði með betra mótinu í ár en verndarenglar Syðridals stóðu sig einsog minnugt er miður vel í fyrra og hafa því lofað úrbótum í ár. Einnig ber að nefna stórkostlegar endurbætur á sundlaug Bolungarvíkur en þar hefur verið komið upp dýrlegri rennibraut sem að enginn má láta framhjá sér fara. Hugsanlegt er að sundleikar Skriðu verði endurvaktir í tilefni þess.

Staðfestir hátíðargestir eru með þeim þéttari þetta árið og lítið er um afföll ef undan er tekinn Pétur Viðarsson sem fer til Barcelona með fjölskyldunni. Hafa verið staðfestar þrjár bifreiðar í augnablikinu og biðjum við fólk um að kunngjöra ráðstafanir sínar í þeim málum hérna í athugasemdakerfinu fyrir neðan. Legg ég til að boðsgestir byrji á að staðfesta komu sína og bifreið sem að áætluð er koma í. Síðan er alltaf gaman ef að spurningum er varpað fram af fullum krafti hér, því að þá geta allir tekið þátt í umræðunum.

Annars er nú um að gera að hefja líflegar umræður um hátíðina og setja niðurteljaran í gang því að einsog skáldið orðaði það svo vel "þetta er að bresta á!"

kv, Hátíðarnefndi

6 comments:

Blogger Halló Skriða.is said...

Þorsteinn Kári er hér staðfestur í fyrsta holli, ég mun rúnta í Passatinum hans Rannsa "graða" ásamt fleirum.

27. júlí 2008 kl. 14:01  
Anonymous Nafnlaus said...

ég eiginlega veit ekkert hvenær ég fer, ég veit ekki hvenær ég má fara ef ég er að æfa með landsliðinu...

27. júlí 2008 kl. 14:06  
Blogger Jón said...

Staðfesti komu. Hvernig er samt staðan á tjöldum og þessháttar? Ég var að tala við Guðmund sem sagði mér að planið innihéldi veislutjald og gistingu inn í húsi, en þar sem að hann er búinn að vera í Köben treysti ég því að hann hafi ekki hugmynd um hvað hann er að segja. Ætlar hátíðarnefnd að staðfesta gróusögur Guðmundar eða verður gisting í tjöldum einnig?

27. júlí 2008 kl. 20:24  
Anonymous Nafnlaus said...

ég fer á fös á heiðarleikanum.. ég ætla að taka tjald með mér, tveggja manna. Einhver daman á svæðinu mun síðan festast í vef(tjaldi) mínu vonandi.

28. júlí 2008 kl. 17:05  
Anonymous Nafnlaus said...

ég, ragga getz og sigga bingó förum með STEF beint eftir vinnu á föstudaginn!

* Krilli *

28. júlí 2008 kl. 18:13  
Anonymous Nafnlaus said...

Anna Margrét kemur einnig með mér svo Explorerinn er fullur...
...fullur af fjöri!

29. júlí 2008 kl. 15:58  

Skrifa ummæli

<< Home